Markus Menczynski, Snædís Ómarsdóttir, nýkjörinn formaður, Brynjar Sæmundsson og Borghildur Aðalsteinsdóttir, ritari. Á myndina vantar Rakel Ástu Sigurbergsdóttur, gjaldkera.
Saga félagsins
Tannsmiðafélag Íslands var stofnað 15. maí 2003 með sameiningu tveggja eldri félaga tannsmiða. Tannsmiðum þótt hag sínum betur borgið í einu félagi og vildu vinna saman að hagsmuna- og framfaramálum. Þennan dag voru aðalfundir félaganna haldnir samtímis að Hallveigarstíg 1 og í framhaldi af því að hvort félag um sig samþykkti sameiningu var gengið til stofnfundar nýs félags. Var eftir því tekið að sameining var samþykkt án mótatkvæða í báðum félögum.
Á stofnfundinum urðu mestar umræður um hvert skyldi vera heiti hins nýja félags. Nauðsynlegt reyndist að knýja fram úrslit með atkvæðagreiðslu og varð niðurstaðan sú að félagið heitir Tannsmiðafélag Íslands eins og hið eldra af fyrri félögunum tveimur. Á aðalfundi 2005 var kosið um nýtt merki félagsins að undangenginni hugmyndasamkeppni meðal félagsmanna.
Tannsmiðafélag Íslands hefur það meðal annars að markmiðum að stuðla að samvinnu meðal tannsmiða í landinu, efla og vernda hagsmuni tannsmiða og starfsréttindi þeirra og gæta faglegra og félagslegra hagsmuna stéttarinnar.
Borgartún 35, 105 Reykjavík Sími: 591 0100 Netfang: ti@si.is